Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 747, 120. löggjafarþing 148. mál: köfun (heildarlög).
Lög nr. 31 2. apríl 1996.

Lög um köfun.


1. gr.

     Enginn má stunda atvinnuköfun í ám eða vötnum, við strendur landsins eða frá íslenskum skipum hér við land nema viðkomandi fullnægi þeim skilyrðum sem sett eru í lögum þessum.

2. gr.

      Atvinnuköfun merkir í lögum þessum allar þær athafnir sem falla undir og eru liður í atvinnustarfsemi kafarans eða annarra aðila. Einnig telst það vera atvinnuköfun ef athöfnin er liður í skipulagðri þjónustustarfsemi til verndar almannahagsmunum. Um sjálfboðaliða, sem ekki þiggja laun fyrir störf sín, gilda reglur sem samtök þeirra setja og samgönguráðherra hefur samþykkt.
      Áhugaköfun merkir í lögum þessum allar þær athafnir sem teljast til köfunar samkvæmt lögum þessum en falla ekki undir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar um atvinnuköfun.
      Köfun merkir í lögum þessum þær athafnir manna sem fara fram undir yfirborði vatns eða sjávar þar sem líkaminn er undir meiri þrýstingi en sem nemur 50 hektópaskölum (50 mbar) yfir loftþrýstingi á yfirborði jarðar og notast er við tæki sem eru hluti af viðurkenndum köfunarbúnaði.
      Köfunarbúnaður merkir í lögum þessum allan þann búnað sem notaður er við köfun og gerir mönnum kleift að kafa.

3. gr.

     Hver sem vill stunda atvinnuköfun skal fullnægja eftirfarandi skilyrðum:
  1. vera fullra 20 ára,
  2. standast með fullnægjandi hætti heilbrigðiskröfur,
  3. uppfylla menntunar- og hæfniskröfur,
  4. hafa gilt atvinnuköfunarskírteini útgefið af Siglingastofnun Íslands.

     Óheimilt er að ráða til köfunarstarfa aðra en handhafa atvinnuköfunarskírteina.
     Sá sem stundar áhugaköfun skal vera 17 ára eða eldri og uppfylla skilyrði 2. og 3. tölul. 1. mgr. Þá er ráðherra heimilt með reglugerð að ákveða að þeir sem stunda áhugaköfun skuli hafa gilt áhugaköfunarskírteini útgefið af Siglingastofnun Íslands.

4. gr.

     Siglingastofnun Íslands gefur út köfunarskírteini til þeirra sem uppfylla skilyrði laga þessara og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim. Skírteini skulu rituð á þar til gerð eyðublöð og gilda til fimm ára í senn.
     Siglingastofnun Íslands skal halda nákvæma skrá um handhafa atvinnuskírteina.

5. gr.

     Hver sá sem flytur inn köfunarbúnað eða smíðar slíkan búnað skal fyrir fram fá viðurkenningu Siglingastofnunar Íslands um að búnaðurinn eða hlutar hans uppfylli tæknikröfur sem gilda þar um. Liggi fyrir vottorð frá viðurkenndri prófunarstofu um að búnaður sé í samræmi við staðla og reglur telst staðfesting frá Siglingastofnun fullnægjandi.
     Eigandi köfunarbúnaðar ber ábyrgð á því að búnaðurinn fullnægi skilyrðum 1. mgr. og að búnaðinum verði haldið við.

6. gr.

     Siglingastofnun Íslands hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd laga þessara.
     Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd laganna, m.a. um skilyrði fyrir viðhaldi réttinda samkvæmt köfunarskírteini, svo sem um menntunar-, hæfnis- og heilsufarskröfur, eftir því sem við á, og um heimild Siglingastofnunar Íslands til gjaldtöku vegna eftirlits, útgáfu og endurnýjunar köfunarskírteina.

7. gr.

     Slys eða óhöpp sem verða við köfun skal tilkynna þegar í stað til lögreglu í því umdæmi þar sem slys eða óhapp átti sér stað og annast lögreglan rannsókn á orsökum þeirra. Við rannsóknina skal kalla til sérfróða aðila eftir því sem þurfa þykir og skal köfunarbúnaður skoðaður af fulltrúa Siglingastofnunar Íslands.
     Niðurstöður rannsóknarinnar skulu sendar rannsóknarnefnd sjóslysa sem fjallar um málið og birtir álit sitt í ársskýrslu nefndarinnar.

8. gr.

     Brot á lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim varða sektum og/eða sviptingu réttinda nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

9. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 12/1976, um kafarastörf.

Ákvæði til bráðabirgða.
     Fram til 1. október 1996 mun Siglingamálastofnun ríkisins annast þau verkefni sem Siglingastofnun Íslands eru falin með lögum þessum er síðarnefnda stofnunin tekur formlega til starfa.

Samþykkt á Alþingi 20. mars 1996.